Viltu breyta um lífstíl, ertu tilbúin að endurskoða hlutina upp á nýtt ?
Með NLP aðferðinni er hægt að laga margt í fari okkar, eins og kvíða, ótta og vanmáttarkennd til dæmis. NLP fræðin nota árangursríkar aðferðir til að bæta lífið og leyfa okkur að líða betur, setja okkur raunhæf markmið,sjá hlutina í öðru ljósi og skipta um hugsunarhátt og margt fleira. NLP er vel þekkt um víða veröld og notað af mörgum fagaðilum, meðal annars innan; stjórnunar- og markaðsfræða, við kennslu, í meðhöndlun af ýmsum toga, við þjálfun íþróttafólks og ekki hvað sís er NLP frábær leið til sjálfseflingar.
NLP leyfir þér að kynnast eigin undirmeðvitund og virkja óbeislaða orku hugans.
Ef við hugsum okkur undirmeðvitundina sem minningabrunn eða slóðann okkar sem við höfum gengið og að hún geymir allar okkar minningar, bæði það góða og það vonda í lífinu og allt þar á milli. Þar er okkar reynsla og okkar fortíð. Með NLP og dáleiðslu er hægt að skoða minningarnar, fortíðina upp á nýtt, sem eru geymdar í undirmeðvitundinni og ná sátt við lífið eins og það er. Það er ekki gott að burðast með gamlar óæskilegar minningar sem eru að trufla okkur í deginum, okkar daglega lífi almennt.
Við vinnum mikið með svo kallaða Tíma-línu (Time Line Theraphy) Tímalínan gerir okkur kleift að ferðast fram og aftur í tímann. Okkar eigin tímalínu og skoða hlutina upp á nýtt eða skapa okkur eigin framtíð og ná okkar markmiðum.
Eins og flestir vita þá er það versta sem við gerum, það er að gera ekki neitt. Það að gera ekki neitt í málunum er þessi svokallaða biðstaða, sem er það versta sem við gerum. Gott ráð er að byrja á því að spyrja sig: Ef ég geri ekkert í málunum ( staðan eins, allt óbreytt), hvernig sérðu þá sjálfan þig eftir þrjú ár ? allt eins? Er það gott eða vont?
Ótrúlegur árangur á stuttum tíma.
NLP er okkar innra tungumál á milli hugsana og undirmeðvitundar. Á bak við NLP liggur forvitni og hrifning á “fólki almennt” t.d. eins og hvernig við hugsum og upplifum veröldina.
Sagt er að öll okkar hegðun og hegðunarmynstur séu lærð, t.d. í uppeldinu, með félagslegri mótun úr umhverfin og fleira. Dæmi má nefna að varla fæðumst við vatnshrædd, flughrædd eða með sviðskrekk. Mjög líklega er það lærð hegðun, við höfum lært að vera hrædd við þessa hluti einhverntíma á einhvern hátt, þ.e.a.s. með því að upplifa þá fyrst. Ef svo er þá er einnig hægt að breyta hegðun okkar, t.d. með því að endurskoða og ná sátt við óþægileg atvik í lífi okkar sem við viljum gjarnan gleyma,atvik sem eru að trufla okkur í daglegri líðan. Ná sátt við fortíðina, það sem er liðið og byggja upp nýja og betri líðan.
Langar þig að losna við flughræðsluna, vatnshræðsluna og hina ýmsu leiðinda bagga sem að á þér hvíla?
Með NLP getur þú....
· Náð betri árangri í starfi
· Losað þig við kvíða, ótta og fælni
· Unnið bug á vanlíðan
· Tekið á offitu og vanlíðan
· Eflt sjálfstraustið
· Náð betri samskiptum
· Losað upp fastar venjur
· Skapað þína eigin framtíð
· Haft betri stjórn á lífi þínu
· Aukið markvisst gæði lífs þíns
· Hugsað í lausnum/útkomum
· Vakið snillinginn í sjálfum þér
· Breytt um hugsunarhátt